Wednesday, December 5, 2007




Jæja margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Um síðustu helgi var lokadjammið okkar Mette og við héldum svaka partý þar sem blandaðir voru hátt í 35 litrar af Tinto Verano og svei mér þá við náðum að koma því út, ekki spyrja mig hvernig en ég hef samt sterkan grun um að ég eigi heiðurinn af því að klára um 17 lítra! Mette “óverdóasaði” af gin og tónic og þannig héldum við af stað út á djammið fínar og sætar. Við fórum á uppáhalds staðinn okkar Mae West og ætluðum svoleiðis að arka inn enda dyraverðirnir líklega farnir að þekkja okkur...en svei mér þá haldið ekki að dyraverðirnir hafi bannað Mette að koma inn og öllum hinum sem voru með okkur fyrir utan þýska bekkjarfélaga minn Anders og mig. Eftir langar “rök”ræður við dyraverðina komumst við að því að þetta væri nú líklega ekkert að fara að ganga upp svo þeir sem komust ekki inn voru á leiðinni frá staðnum. En hvað haldið þið að einn dyravörðurinn hafi þá gert??? Jújú einmitt það eina rétta í stöðunni....SKYRPA á Mette! Ég hef sjaldan á ævi minni verið jafn hneyksluð...en sökum mikillar drykkju gat kvöldið ekki farið úrskeiðis og við héldum glaðar áfram með hráka í hárinu;)
Svo fékk ég 9.2 út úr síðasta áfanga...mín hristir þetta bara fram úr erminni..híhí. Þannig að á þriðjudaginn síðasta byrjaði ég í þriðja og síðasta áfanganum Avanzado B og tek próf úr honum 19.des og kem svo heim á klakann 22.des...viljiði pæla mér finnst ég varla hafa farið!
Á laugardaginn síðasta fór ég svo út á Tapas rölt og enn og aftur vil ég ítreka hversu mikil snilld þessi uppfinning er! Ókeypis lítill matarskammtur með hverjum drykk....ókeypis matur, kannski Haugsi ætti að flytja til Spánar...híhíhí
Á mánudaginn yfirgaf Mette mig svo og hélt aftur til Danmerkur og aldrei datt mér í hug að það væri svona erfitt að kveðja svona nýja vini, ég hef bara þekkt hana í tvo mánuði en samt skældi ég næstum úr mér augun! (kannski ekkert óvenjulegt fyrir mig þar sem ég er lélegust í heimi að kveðja fólk, ég fer alltaf að grenja og ef ég fór ekki að grenja þegar ég kvaddi þig, ekki móðgast þá því ég gerði það alveg örugglega þegar ég snéri mér við;) En við ákváðum nú að reyna að hittast á næsta ári og hver veit nema ég skelli mér með stöllu minni á Hróarskeldu...hver vill memm?
Í gær fór ég svo í göngutúr með Emily til að taka myndir af jólaljósunum sem eru út um allt, þvílíkur metnaður og jólabarnið ég alveg svaka ánægð;)
Núna er ég svo komin í 4 daga frí af því að á morgun er einhver heilagur kaþólskur dagur og ef það geris á fimmtudegi þá hafa spánverjar bara líka frí á föstudeginum, æ bara af því bara, alveg magnað þetta spænska kerfi. Mér finnst það samt fínt, ekki er ég að kvarta, ég ætla að reyna að fara til Málaga eða Sevilla í staðinn og kannski ég skelli mér á skíði upp í Sierra Nevada fjöllin.
Svo hef ég nýjar fréttir af honum Misi, kettinum sem mér hefur tekist að búa með í sátt og samlyndi í rúma tvo mánuði. Hann hefur verið að sýna mér meiri athygli en hann er vanur undanfarið og er farin að mjálma alveg ógurlega fyrir utan herbergisdyrnar mínar á kvöldin og klóra í hurðina. Veit ekki alveg hvað hann vill, reyndar fékk ég gamla herbergið hans þegar ég kom þannig að kannski vill hann fá það aftur hver veit. En vegna hræðslu minnar við þennan blásaklausa og yndislega kött hef ég sofnað með spenntar rasskinnar af hræðslu undanfarnar nætur, hversu óþægilegt er það???
en nú er nóg komið af bulli...ég ætla að fara að gera eitthvað uppbyggjandi;)
Hasta luego

9 comments:

RaggaÝr said...

hahaha.. dótamúsin hans er pottþétt inni hjá þér eða eitthvað:)

hver man nú ekki eftir 17. júní þegar við fórum að grenja þegar við vorum að fara hittast daginn eftir:D hahahahaha.

æji ég hlakka til að fá þig heim. og við verðum að leika leika leika:D þar sem ég fer síðan 3. jan út.. ómæ!

Anonymous said...

Ertu þá ekki bara að fá stinnan og flottan kúlurass?

Unknown said...

Ertu þá ekki bara að fá stinnan og flottan kúlurass?

Anonymous said...

Frír matur með hverjum drykk segiru!?!?! Kannski ég myndi bara fíla mig ágætlega á Spáni;)

En ég held við þurfum að fara að sigrast á þessum hræðslum okkar! Ég af fuglahræðslunni sem að btw á sér nafn "Ornithophobia" og þú á kattarhræðslunni. Shit hvað ég væri með stinnan rass ef fugl væri stanslaust að banka á mínar dyr á hverju kvöldi!

Hlakka til að sjá sméttið á þér eftir nokkra daga.

Anonymous said...

Djöfulsins dónaskapur er þetta að skyrpa á fólk!
En já alltaf jafn gaman að fá fréttir af þér ;)
Kv. Elsa

Anonymous said...

hehe spenntar rasskinnar.. get sagt það sama hérna megin.. þú veist sko að bróðir hans benna sefur í næsta herbergi við okkur og hann er jú fyrir rassa! djók...

ehm.. talandi um grátur.. ég man einmitt ekki betur en að við gamla hrafnagilsþríeykið höfum verið að væla í hálsakotið á hvor annarri! hehe alveg flottastar! :)
það verður gaman að fá þig heim! svo mikið

Anonymous said...

þið eruð bara grenjuskjóður allan tímann... ég myndi nú segja don't cry for me Argentina en það hefur engin gerst svo djarfur að grenja fyrir mig eða útaf mér hingað til!

kannski er tæknin mín að skyrpa framan í þig þegar við kveðjumst ekki eins áhrifarík og ég hélt fyrst þú brosir bara og gengur glöð áfram við skyrp;)

vá ég bloggkommentaði, sjáumst aldrei!

(K)(L)(K)

Anonymous said...

Ég ætlaði einmitt að skrifa "skemmst er að minnast sautjánda júní..." en það eru svo margir búnir að minnast á þann dag að það er bara hallærislegt.

Heldurðu að við sjáumst ekkert áður en við förum út? Mér þætti það rosa svaka leiðinlegt að hafa ekki séð þig í marga mánuði og svo ekki aftur í hálft ár! Eiginlega bara skandall.

Knús.

Anonymous said...

Og já, þín var sárt saknað á árshátíðinni ljúfan. Þá fór ég næstum að skæla. :*