Monday, December 10, 2007

Powerblogg






Þá er þessi LANGA helgi búin og ég búin að vera svaka dugleg að gera fullt af skemmtilegu dóti. Á fimmtudaginn síðasta fór ég í göngutúr með Fionu og Emily upp á útsýnispallinn hér í Granada sem heitir Mirador. Þar getur maður séð yfir alla borgina, alla leið upp í Sierra Nevada fjöllin og svo má auðvitað ekki gleyma Alhambra kastalanum mesta stolti Granadína. Þar tók ég alveg óheyrilega mikið af myndum af útsýninu og sólsetrinu. Á leiðinni niður gengum við í gegnum arabahverfið, Albaysín, og sáum alskonar skranbúðir, te-hús og mishæfileikaríka götulistamenn sem er ansi mikið um í þessu hverfi. Albaysín er alveg ótrúlega flott hverfi og er stór hluti af Granada, ég hef samt ekki mikið farið þangað meðan ég hef verið hérna því það getur verið mjög hættulegt fyrir ljóshærða túristavitleysinga eins og mig.
Borgin sjálf er alltaf að verða jólalegri og jólalegri og ég alveg að fara af taugum ég hlakkar svo til jólanna í faðmi fjölskyldunnar, en ég finn samt ekki fyrir neinu jólaskapi hér það er hreinlega ekki hægt. Hér er ennþá 16 stiga hiti á daginn og sól og ég bara kem mér ekki í gírinn, ekki einu sinni með hjálp Ellýjar og Vilhjálms. Spánverjar halda líka allt öðruvísi upp á jólin, en núna eru þeir farnir að stylla upp fleiri og fleiri Betlehem-um um alla borgina. Það eru sem sagt líkön af Betlehem með litlum leirköllum og konum, dýrum og gróðri og fólk bíður í löngum röðum í kuldanum á kvöldin til þess að komast inn í húsin sem þessu er stillt upp í, furðurlegt alveg. Ég fór inn í eitt svona um daginn bara til að forvitnast og þetta var svei mér þá bara nokkuð flott, þvílík smáatriði. Kannski ekki skrítið að mér hafi fundist þetta flott þar sem samanburðurinn sem ég hafði af þessu fyrirbæri var Betlehem-uppstyllingin sem er á borðinu í andyrinu á Egilsstaða kirkju, en það er bara fjárhúsið, ein kind og ein kú, María, Jósep og Sússi litli.
Svo eru alltaf fleiri og fleiri að fara heim og það kemur mér alltaf meira og meira á óvart hvað það er erfitt að kveðja þetta lið. Á laugardaginn kvaddi ég Sherie bekkjatsystur mína frá Austin, Texas. Alveg ótrúlega forvitnilegur einstaklingur þar á ferð. Hún er 31 árs fjögurra barna móðir, gift milljónamæringi sem er 17 árum eldri en hún, ótrúlega alvörugefinn og umhyggjufull (ég veit ég er að búa til orð ég bara finn það ekki í hausnum á mér núna) móðir sem dansar upp á barborðum þegar hún fer út á lífið. Hún bauð mér í reunion til Texas í júní 2008 en ég sagðist nú líklega ekki eiga nægan pening þá, en hún tók það ekki í mál og sagði að einhvern daginn myndi bíða mín e-miði á tölvupóstinum mínum til Texas, þannig ég þarf bara að bíða og vona að hún hafi ekki verið það drukkin þegar hún lofaði þessu;)
Fór svo í göngutúr um daginn og fann nautaatshringinn. Ætla að reyna að komast á nautaat áður en ég fer heim, en það er eitt nautaat í Atarfe (sem er einhverstaðar hér nálægt) 16.des. en það er svona aukaat sem er til styrktar einhverju í sambandi við jólin...Finnst það svona frekar kaldhæðnislegt að drepa sex naut á hrottafullan hátt bara svona í tilefni jólanna...hehe...ég hef alltaf sagt að spánhverjar væru skrítinir.
Úff þetta er endalaust....
Á sunnudaginn fór ég svo til Málaga með Fionu, við skoðuðum Dómkirkjuna, eldgamlan kastala þar sem ríkisstjórn síðustu múslimanna í Málaga bjó. Við fórum svo á ströndina í smá sólbað og skoðuðum svo jólaskreytingarnar og þar sá ég stærsta jólatré sem ég hef séð um ævina. Þegar við fengum okkur svo hádegismat fundum við bar sem heitir Cheers og er eftirherma af barnum úr þáttaröðinni, en þar sem Cheers er það eina sem ég hef horft á síðusut tvo mánuðina þá fannst okkur nú við hæfi að tylla okkur við hliðina á styttunni af Norm og fá okkur einn hambó með fröllum.
Dagurinn var alveg frábær og voðalega þægilegt að fá smá hita á kroppinn eftir allan “kuldann” í Granada, veit ekki hvað ég á eftir að gera þegar ég kem heim í alvöru kulda.
En fyrir þá sem ekki eru búnir að fatta það þá kem ég heim eftir litla 12 daga vúbbí;)

Þangað til næst (sem verður líklega seinasta bloggið í þessari seríu)

Hasta luego mis amigos;)

Myndir:
1.Sierra Nevada fjöllin
2.Einhver stelpa og Alhambra-kastalinn
3.Granada við sólsetur
4.Nautaatshringurinn
5.Emily, Fiona og ég

2 comments:

Anonymous said...

Ég trúi ekki að þú hafir ekki farið til Sevilla, ég er bara móðguð! Nei, ég er samt róleg, mig langar bara að skreppa aftur til þangað...
Mér finnst skrítið að það séu að koma jól, hjá mér var sumar fram í nóvember og því furðulegt að jólin séu að koma...
En talandi um kulda, hér er 10 stiga frost, þannig að vertu tilbúin með dúnúlpuna áður en þú ferð útúr Leifstöð;)

Anonymous said...

Ef þú ferð til Texas þá verðuru að taka flug (ekki dýrt þaðan) til mín í LA og heimsækja mig í sólina!!! Og talandi um kaldhæðni þá var ég með bandaríksan vin minn í heimsókn og honum fannst klikkað fyndið að borða hreindýr í kringum jólahátíðina;) þá sérstaklega hafa það á jólahlaðborði..hehe borða litla Rúdólf;) Ég sagði honum líka að ástæðan fyrir að jólasveinninn væri ekki til er að við borðuðum hann!