


Fékk nett taugaáfall þegar ég fattaði að ég var virkilega að fara eftir nokkra klukkutíma nóttina áður en ég flaug af stað.Vaknaði skelfingu lostin eftis svona hálftíma svefn og gat hreinlega ekki sofnað aftur. Kom mér síðan af stað og flugin tvö gengu bara alveg hreint ágætlega, gat skipt um vél og allt sjálf;) Kom mér svo á Hostelið sem ég var búin að panta AB Hostal, haha þvílíkt og annað eins slumm. Fyrstu nóttina fékk ég ca. 3 fermetra herbergi með engum glugga (eða jú það var einn gluggi en hann lá bara fram á gang og þegar ég fór að sofa um kvöldið sá ég skuggana af fólkinu sem labbaði framhjá) frekar óþægilegt svona. Daginn eftir fór ég af stað um 10 með kort af Granada að vopni ég gekk af stað og hélt ég væri að gera góða hluti þegar eg fattaði að ég vissi ekkert hvað var í norður en ég fattaði það að lokum og eftir svona hálftíma var ég búin að finna skólann. Dagurinn fór svo í það að labba um bæinn og reyna að átta sig aðeins á honum og auðvitað kíkja smá í búðir;) Þetta er alveg æðisleg borg allstaðar svona pínulitlar og mjóar götur með allskonar skrítnum búðum, fullt af torgum með kaffihúsum og gosbrunnum og svo skemma nú ekki fjöllin í kring sem eru næstum alþakin hvítum húsum, alveg ótrúlega flott! Endaði svo daginn á því að fá mér pizzu og ís, sat ein á matsölustað og horfði út í loftið og reyndi að skilja það sem fólkið á næsta borði var að segja. Dagurinn í dag byrjaði svo með því að ég fattaði að ég á ekki neitt skóladót svo ég dreif mig út og ætlaði í mollið sem ég fann í gær til að kaupa allt sem ég þarf en það var lokað því það er jú sunnudagur. Þess vegna hef ég ákveðið að hýrast hér inni á hótelinu í allan dag (25°C og sól) og rifja upp spænskuna því það er víst stöðupróf á morgun.
Hasta luego mis amigos;)