



jæja, ég ætla að reyna að standa mig í að vera bloggari, svo ætli ég þurfi ekki að blogga smá núna;)
Það er ansi mikið búið að gerast síðustu daga, fór út á sunnudagskvöldið til að finna mér eitthvað að borða en þegar ég kom út á aðalgötuna var svo mikið af fólki að ég komst ekkert áfram. Ég varð nú svolítið forvitin og ákvað bara að fylgja straumnum því það var augljóslega eitthvað í gangi. Löggan var ut um allt og allir voru rosa fínir. Loksins kemst ég að torginu, þar voru tvær lúðrasveitir og þegar ég leit niður hina aðalgötuna sá ég eina stærstu skrúðgöngu sem ég hef séð um mína ævi. Allir gengu niður götuna í tvöfaldri röð, með kerti í höndinni og aftast í göngunni voru þrír strákar í kirtlum með kerti á svona stórum silfurstöngum og sá sem var í miðjunni hélt á siilfurkrossi með Jesú nokkrum kristi! Eftir gönguna var alveg fáránlega löng flugeldasýning, ég skil ekki ennþá hvað var í gangi en ég giska á að þarna hafi eitthvað kaþólskt verið á ferðinni;)
Á mánudagsmorguninn fór ég í stöðupróf til að ég gæti vitað í hvaða level ég færi og í hvaða bekk ég væri. Mætti reyndar í vitlaust hús, þau eru víst tvö ég veit það núna , en maðurinn í móttökunni var svo vingjarnlegur að segja mér hvar hitt húsið var og gaf mér meira að segja kort og allt;) Stöðuprófið gekk ágætlega en ég endaði í Intermedio A sem er eiginelega "erfiðleikastig" 3. Síðan fór ég og gerði alveg heilan hellingeftir prófið, fór í passamyndatöku, fékk mér spænskt símanúmer (0034665400001, ef einhver vill heyra í mér;), reyndi að stofna bankareikning en ég þarf víst að fá mér eitthvert blað hjá lögreglunni í Granada og eitthvað blablableble sem ég skildi ekki alveg því konunni í bankanum datt ekki í hug að reyna að tala pínu hægar.
Síðan var það fyrsti skóladagurinn í dag og Sólveig ákveður að sofa yfir sig, pínu panikk sem greip um sig þar! Vaknaði korter í og átti þá eftir að taka mig alveg til og koma mér í skólann (það tekur mig 20mín að labba þangað), en ég hljóp af stað með töskuna á öxlinni varla komin í fötin þegar ég hljóp út af hótelinu. Ég held ég hafi ekki lyktað neitt voða vel þegar ég mætti í skólann en þá var enginn komin og tíminn byrjaði víst ekki fyrr en hálf tíu..ég er auli, ég veit;) Dagurinn gekk ágætlega en maður lifandi hvað það getur verið erfitt að halda einbeitingunni til að hlusta á kennaran allan tímann og skilja hvað hann er að segja.
Síðan fékk ég stað til að búa á, bað um að fá að vera hjá fjölskyldu en verð hjá einhleypri gamalli konu sem á KÖTT! ég verð víst að reyna að venjast þessum kattarandskota þó ég sjái ekki fram á mikinn persónulegan bata hvað varðar dýrahræðslu! Íbúðin er samt upp á 10 hæð (gæti jafvel misst köttin "óvart" fram af svölunu einn daginn, hver veit;) og útsýnið er alveg geðbilað!
Læt fylgja með myndir af dularfullu skrúðgöngunni minni, úr skólanum og einhverju fleiru...
Adiós
7 comments:
haha.. loksins þarftu að venjast dýrum. :) ánægð með hvað þú ert dugleg að blogga.
gott þu ert ekki með ofnæmi allavega ;)
styttist í að ég komi í heimsókn! er alveg að verða búin að safna nóg... hlakka til!
HAHAHHAHAHA auðvitað átti hún kött;) Allar gamlar konur eiga kött!
úú.. þetta sándar vel, nema hvað kötturinn hehe.. en já skemmtilegt að fá fréttir!
vá hvað er dæmigert að hún á dýr! Hver veit Sólveig mín, kannski verðuru bara dýraáhugamanneskja eftir þessa ferð ;) hljómar samt ótrúlega vel, "samgleðst" þér innilega af góða veðrinu... Haltu áfram að setja inn fullt af myndum, rosa gaman að sjá!
hehe ekki alveg að fatta þetta. Commenta aldrei og kann það ekki... bisous, Kristín Sól
Post a Comment