Saturday, October 6, 2007

Jaeja, nú er ég búin ad vera hérna í viku og thad hefur allt gengid vel enn sem komid er. Ég er reyndar búin ad komast ad mörgu skrítnu um spánverja, their eru bara hreint ekki eins og fólk er flest (segi ég, sem kem frá litla Íslandi;). En samkvaemt mínum útreikningum aettu spánverjar ad vera svona helmingi faerri en their eru í dag, af hverju ? jú af thví ad umferdin hér er alveg snarvitlaus. Hér flautar fólk stanslaust hvort á annad, jafnvel thó thad sé ekkert í gangi nema rautt ljós. Svo troda vespurnar sér allstadar á milli thannig ad tvöföld akgrein er venjulega svona fimmföld ef vid teljum vespurnar med. Svo veit ég ekki hversu oft ég hef stadid og bedid eftir ad geta hlaupid yfir jafnvel thó thad sé graenn kall, theim er alveg sama um thad og svo eru götuljósin líka stillt thannig ad stundum er rauttt ljós á öllum og allir eru ad bída eftir ad komast yfir...alveg stórfurdulegt daemi!
Ég á líka ansi erfitt med ad venjast thessari siestu á Spáni, satt best ad segja hélt ég ádur en ég kom ad thetta vaeri bara yfir sumarid thegar thad thad er miklu heitara, og tha hélt ég ad vaeri lokad yfir heitasta tíma dagsins...en neinei thad er alrangt. Hér er öllu lokad ALLTAF fra 2 til 5 a daginn og tha tharf eg alltaf bara ad hanga eitthvad thangad til allt opnar aftur, frekar pirrandi svona. Svo borda Spánverjar líka á furdulegum tímum, hádegismaturinn er t.d. kl hálf thrjú á daginn og kvöldmaturinn kl hálf níu...thetta er líka ansi erfitt fyrir matargatid mig, thar sem ad ég er alltaf ordin svöng um svona 11. Og their sem thekkja mig vel, vita hvad gerist thegar ég er svöng..hmmhmm
En ég aetti svosem ad geta vanist thessu eins og hverju ödru;)
Svo vil ég bara benda theim á thad sem höfdu thad í hyggju ad knúsa mig thegar ég kem heim , ad bída med thad í svona tvo til thrjá daga thví spánverjum finnst ekkert ad thví ad reykja inni hjá sér, og konan sem ég bý hjá er sko engin undantekning! Ad kyssa mig mun örugglega komast nálaegt thví ad sleikja öskubakka!
En svo ég haetti nú ad kvarta thá er bara ansi gaman hér á Spáni, er búin ad kynnast stelpu frá Danmörku, sem heitir Mette, strák frá USA sem heitir Jesse og og auditad öllum sem eru med mér í bekk. Ellen aetlar svo ad koma ad heimsaekja mig naestu helgi ádur en hún fer heim og thá aetlum vid stöllur ad skella okkur á ströndina og vera smá túristar í okkur.
en thangad til naest....
kv.Sóla (nýja nafnid mitt, thví enginn getur sagt Sólveig eda Edda)

10 comments:

RaggaÝr said...

ekki heitir hann Jesse Spencer þessi strákur frá USA? úúúú.. ég er byrjuð að horfa aftur á house og veistu þetta á eftir að koma á óvart:

kv. frá borg óttans

Anonymous said...

Haha Jesse Spencer! En hlakka til ad koma í heimsókn, bara spurning hvort ad ég komi á fimmtudag eda fostudag. Reyndi ad hringja í tig en tad gekk illa...
Hérna heiti ég Helen, jebb tar sem Spánverjar sleppa alltaf H-inu í ordi tá finnst ollum ég vera segja Helen tegar ég segist heita Ellen úff gód saga ég veit!

Anonymous said...

Hæ Kusa gaman að heyra frá þér. gott að allt gengur vel. Haltu áfram að blogga svo maður geti fylgst með

Anonymous said...

Alla malla.. Djöfull væri ég pirruð ef það væri alltaf reykingalykt af mér! Pero skemmtilegt að heyra af þér.

Heiðdís Halla said...

Já sæl Sóla!
Ég sendi þér með kveðju í góða veðrið á spáni úr kuldanum og bleytunni í Reykjavik.!.!:.!...!!!

Hasta bolero meso picos

kisss

Anonymous said...

Og þú færð engan kvöldmat á slaginu 7? isss prump. Ekki láta keyra yfir þig og ef hann heitir Jasse Sperncer þá skaltu giftast honum!

Anonymous said...

hahaha ég skrifaði Jasse Sperncer! meinti Jesse Spencer...auli

Böddi Disel said...

Bleeeezzzz litla rassgat.
Gott að heyra að þú sért á lífi.
Þú lýtur bara á þessa reynslu þína á Spáni innan um ketti og sígarettureyk sem þinn tíma í að lifa utan bómullarhnoðrans í faðmi foreldranna :-) Það eru allveg ótrúlega mikil sannindi fólgin í textanum hans Megasar "Ef þú smælar framan í heiminn, þá smælar heimurinn framan í þig". Reyndar skil ég þig alveg ferlega vel varðandi matartímana....ekki okkar sterkasta hlið :-(
Kveðjur frá öllum á Smáraflöt 18

Anonymous said...

ég sakna svarta hanskans! ég og kristín erum að halda honum við eins og er... bíðum eftir þér og evu ;)
njóttu lífsins þarna úti gella!

Anonymous said...

Úh þetta er ment tú bí held ég þótt hann sé ekki Spencer ;)

En já gott að vita af þér, haltu áfram að blogga kélling... væri alveg til í að skipta við þig í nokkra daga, kreivar þig ekki í rigningu humm ha ha jú hélt það