


Jæja thá er kominn tími á blogg;) Úff thad gerist alltaf svo marga á milli blogga ad eg hef ekki hugmynd um thad hvar ég á ad byrja.
Á mánudaginn fór ég í göngutúr um Albaycín hverfid med skólanum. Fyrst aetladi ég nú bara ad fara ein en einhver hvísladi thví ad mér, sem betur fer, ad mér yrdi líklega raent, veskinu mínu yrdi raent eda í minnsta lagi yrdi ég áreitt kynferdislega, allt thví ad kenna ad ég er med óvenjulega ljósan hárlit! Ég ákvad thví frekar ad bída thangad til skólinn vaeri med hópferd med leidsögumanni. Thetta hverfi er alveg magnad, göturnar eru svo mjóar ad thad komast ekki bílar thar í gegn, húsin eru öll hvít (eins og sést á myndinni sem er efst á blogginu) og baedi göturnar og húsin eru öll skökk og kraeklótt sem gerir thad ad verkum ad tharna er mjög audvellt ad villast. Vid forum upp á adal útsýnispallinn í Granada sem hefur alveg ótrúlegt útsýni yfir borgina og Alhambra höllina, skodudum svo í svona austurlenskar búdir sem selja alskonar skran fyrir engan pening og svo fann ég graffitimynd af Björk.
Á thridjudaginn gerdist ég svo hugrökk og skellti mér í salsatíma! Thvílíkt og annad eins, tíminn byrjadi thannig ad ég var EIN med kennaranum í svona halftime thví spánverjar eru svo rólegir ad their maeta ekkert fyrr en halftima klukkutíma of seint ( ég ekki alveg búin ad tileinka mér thennan spaenska lífsstíl) en sjálf maetti ég 20 mín of snemma. Hann kenndi mér grunnsporin og svona og loksins fór folk ad maeta og ádur en ég vissi af var ég farin ad dansa vid einhvern spaenskan herramann! Úff ég veit ekki hvort ég leggi aftur í thetta ein en thetta var samt ansi skemmtilegt og ég hef sjaldan fengid jafn svadalegar hardsperrur í kálfana;)
Svo skellti ég mér í bíó um daginn med Mette og Jesse, vid forum á Ratatouille thví vid héldum ad barnamyndirnar vaeru kannski med ordaforda sem vid rédum vid. Thad var líklega alveg rétt hjá okkur en allir kokkarnir í myndinni töludu spaensku med frönskum hreim, thvílík skelfing!
Á laugardaginn fór ég svo í Erasmus partý í adalklúbbnúm hér í Granada sem heitir El Camborio. Thar hitti ég tvo stráka frá Skotlandi sem höfdu svona líka áhuga á Íslandi og öllu sem thví tengdist, held their hafi spilad út öllum mögulegu spilunum eins og: oh Reykjavík, and yes…Gudjonssen, and Björk, don´t you have like just three hours of daylight…thats amazing say something in icelandic! Svo sagdist annar tierra ólmur vilja komast til Íslands í verktakavinnu til ad graeda smá pening. Ef hann bara vissi hvad erlendir verkamenn fá í laun á Íslandi…Their voru ágaetir en gud hvad thad er erfitt ad skilja thennan hreim.
Skellti mér aftur á strondina í gaer og svei mér thá ef ég nádi mér ekki á smá roda á bringuna og 4-5 freknur í vidbót.
Í morgun fór ég svo á staersta útimarkadinn hér í Granada og aetladi sko aldeilis ad versla mér eitthvad flott dót thví kennarinn minn sagdi ad tharna vaeru föt og skartgripir, ávextir, nammi og alskonar dót. Thegar ég kom svo á markadinn blöstu vid mér vörur frá thekktum fyrirtaekjum eins Mike og Ñike (Nike), Salvina Kelvin (Calvin Klein), Chaner og ad sjálfsögdu gömlu gódu D&G beltin sem er allsstada haegt ad finna. Ég fór tómhent heim ótrúlegt en satt;)
Á eftir aetla ég svo ad fara og leggjast flöt í listigardinn og reyna ad ná mér í adeins fleri freknur;)
Hasta luego!
9 comments:
hey sástu smsið frá mér eða sendi ég óvart í hitt númerið?
alla vega ég fór á !!! og váááá hvað ég sé ekki eftir því þau voru geðveik. hann crowd surfaði og allur pakkinn:D hahah..
annars kveðja frá þynnkunni í reykjavík;)
Hæ hæ, ég les bloggið hjá reglulega, gaman að fylgjast með þér þarna á Spáni..ég fór einmitt líka á Ratatouille í bíó, hélt að ég réði við það, reyndist ekki alveg rétt hjá mér...;)
Skemmtu þér annars vel, bara að kvitta fyrir mig
kv. Snædís
Vá trúi ekki að þú hafir skellt þér ein í salsa tíma! Úff held að ég hefði ekki höndlað það...
En er komin hingað á litla Ísland í kuldann og ekki alveg að meika þetta íslenska lyklaborð, búin að þurfa að leiðrétta öll Þ og Ð hjá mér!
Úúú.. dugleg að skella sér í salsa annars langar mig mjög að skoða alhambra og Albaycín, þó ég hafi gert miður góða ritgerð um það haha!
En gaman að fylgjast með þér... mér finnst eins og ég sé að lesa dagbókina mína frá árinu 2000 ;)
Nú eru skíðakennaranámskeiðskeiðin á næsta leyti þannig að ég býst við að þú sért farin að setja þig í réttu stellingarnar fyrir Sierra Nevada... ;)
Un beso
hehe Salvina Klein og Mike, ég hló upphátt! :)
stormviðvörun á íslandi! engar freknur hérna megin! mikið öfunda ég þig!
knús fyrir allan peninginn abt
ég fer alltaf inná bloggið þitt en þori aldrei að kommenta því ég les alltaf bara fyrirsagnirnar og skoða myndirnar:) Gaman að fylgjast með þér útá Spáni beib... farðu samt að koma heim, þetta er komið gott!
Jei Sólveig fór í Salsatíma;) Vonandi sveiflaðiru spanjolunum vel til eins og sannur íslendingur. Kíki á bloggið þitt daglega því þessi veikindi mín eru að gera mig brjálaða. Ævintýið þitt lífgar mjög upp á rúmliggjandi dagana mína;) Hlakka til að fá þig heim sæta!
Djöfull er ég ánægð með að þú hafir farið í salsa tíma! Knús til þín :*
Post a Comment