Saturday, October 27, 2007

Mjóóóólk!




Það eru tveir dagar þangað til ég verð búin að búa hér í mánuð! Einn þirðji af ferðalaginu er búin og mér finnst þetta varla vera byrjað! Það hefur margt skemmtilegt gerst í þessari viku og meðal annars þá skrópaði í fyrsta skipti í skólann..híhí (ekki segja mömmu og pabba), en það var sökum mikilli timburmanna. Skólinn hélt nefnilega skemmtun fyrir nemendur á fimmtudegi og það var svona heldur betur tekið á því að annað eins hefur varla sést;) Ég og Mette danska komumst í kynni við barþjón sem var svona heldur betur skotin í okkur og gaf okkur fría drykki allt kvöldið (afar hentugt að vera ljóshærður hér í suðrinu) múhahaha! En það hafði líka sínar afleiðingar og hvorug okkar mætti í skólann daginn eftir.
Ég fór svo aftur í bíó á miðvikudaginn og núna gerðumst við hugrökk og fórum á fulloðins mynd sem heitir Trece Rosas (13 rósir) og er sönn saga af 13 konum sem gerðu uppreisn hér á Spáni gegn einræðisherranum Franco en fyrir það voru þær teknar af lífi. Myndin var AFAR dramatísk og ég þakkaði Guði fyrir að hafa farið á þessa mynd hér á Spáni þar sem enginn þekkir mig því við stelpurnar réðum bara engan veginn við tárin, ekkasogin og jafnvel horið í sumum atriðum.......jesús! Ég mæli eindregið með að þið farið á þessa mynd ef hún kemur til Íslands en takið samt með ykkur vasaklút, eða já, kannski bara lak!
Hmmm hvað fleira...já mig langar í mjólk! Man ekki hvort ég var búin að tala um það er mjólkin hérna er hreinn viðbjóður og það ætti að fara með þetta mál fyrir dómstóla því þetta eru hrein og bein brot á mannréttindum að mjóða manni upp á þetta! Ég reyndi einu sinni að fá mér mjólk og það geri ég ekki aftur. Mjólkina á spáni þarf ekki að geyma í kæli því hún er svo full af rotvarnarefnum að hún geymist "óskemmd" opin, í stofuhita á eldhúsboðinu svo vikum skiptir. Hún er þykk svona eins og súrmjólk og nýmjólk blandaðar saman og bragðið er svona eins og...æ úff ég veit ekki, bragðið er bara vont...Mig langar í kalda ÍSLENSKA nýmjólk og skúffukökuna hennar mömmu.
Konunni sem ég bý hjá finnst við bara skrýtnar þegar við kvörtum yfir mjólkinni, en satt best að segja finnst mér hún alveg stórskrítin!

Skemmtilegar staðreyndir um konuna sem ég bý hjá María Luz Rodríguez Fresnada:
-Hún tekur sér siestu á hverjum degi í 3 klukkutíma (sefur, gælir við köttinn sinn og horfir á sápuóperur og reykir, allt upp í rúmi).
-Hún myndi fá hjartaáfall ef kötturinn hennar myndi deyja
-Hún reykir þegar hún þrífur
-Hún reykir (og situr) þegar hún straujar fötin mín!
-Hún straujar líka nærfötin mín...hahaha
-Hún reykir þegar hún eldar og horfir á sjónvarpið
-Hún horfir á spænska sápuóperu á hverju kvöldi með köttinn í fanginu (þó hún hafi gert það í þrjá tíma fyrr um daginn).
-Hún kann uppskriftir af yfir 13.000 súpum...og ég fæ eina á hverjum degi!
-Hún á endalaust mikið af svona skraut-kristal-dýrum og ljótu blómapottaskrauti.
-Hún djúpsteikir ca.70% af því sem við borðum en með hinu fylgir majones.

Ég mun að öllum líkindum minna ansi mikið á körfubolta þegar ég kem til baka!

En nú er komið nóg af bulli, fer í skoðunarferð um Alpujarra þorpin á morgun, sem eru lítið eldgömul þorp í Sierra Nevada fjöllunum og svo fer ég í lokapróf úr fyrsta áfanganum á þriðjudaginn og fæ svo viku frí þangað til næsi áfangi byrjar...sjibbí!

Myndirnar eru frá skólaskemmtuninni:)
1.Ég og Mette
2.Ayumi frá Japan og Fiona frá Englandi
3.Ég og hinn frægi Jesse, þó ekki Jesse Spencer (hefði ekki verið verra;)

blessó hressó!

8 comments:

RaggaÝr said...

haha þegar ég sá efstu myndina þá þekkti ég þig ekki fyrr en ég var búin að horfa á hana í smá stund.

hvenar kemuru heim um jólin?

Anonymous said...

Af hverju? Af hverju straujar maður nærföt? Það er eins og að strauja sokka!!! Þú ert sæt! Ég ætla að fara að ryksuga á laugardagskvöldi! ég er sorgleg!

Heiðdís Halla said...

Þú ert krúttlegust í heimi!!! JIIII hvað er gaman hjá þér!!! Saknaðar kys og kram frá mér til þín
Stóra systir

Heiðdís Halla said...

Þú ert krúttlegust í heimi!!! JIIII hvað er gaman hjá þér!!! Saknaðar kys og kram frá mér til þín
Stóra systir

Arna Mekkín said...

krúttlega pæjan þín! vá hvað það er örugglega gaman hjá þér! mikið sakna ég þín samt litla krús! :)

en er ekki alltaf reykingalykt af brókunum þínum? :P

Anonymous said...

ég pældi í því sama og arna
"en er ekki alltaf reykingalykt af brókunum þínum? :P"

Anýhús vá hvað er gaman þarna hjá þér, gaman að fá nýtt blogg svona i slabbinu hérna heima!

Anonymous said...

er fegin að þú fannst sálufélagi þinn sem getur fengið ókeypis drykki með þér, grenjað í bíói og skrópað í skólanum! sökum þess að ég gæti bara gert einn þessara hluta með þér...

ps. I love you and I wanna marry you!

Anonymous said...

Hahh ég þurfti líka að horfa á myndirnar í smá tíma til að fatta að þetta væri þú... why ? Þekki þig líklega ekki heldur ef þú kemur heim í líki körfubolta, appelsínugul af brúnku að auki.

Úff ég sakna þín barnið gott, shit hvað ég ætla að kjafta í foreldra þína ef ég fer heim um helgina ;)