Monday, October 15, 2007

...hola todos...






Nú er liðinn rúmur hálfur mánuður og vá hvað hann hefur liðið hratt! Ég er búin að gera alveg hellings og búin að skemmta mér alveg konunglega við það. Skólinn gengur alveg ágætlega, ég skil alltaf meira og meira af því sem kennarinn segir;) Talið kemur samt eitthvað hægar, ætli ég verði ekki bara að fá mér spænskan kærasta til að geta æft mig meira að tala (fjölskyldu og vinum til mikillar ánægju), einhver sem heitir José María eða Jesus Gonzales....nei ætli ég láti það ekki vera, ég vil íslenskt kjöt á minn disk! híhí...
Ég fór um daginn í göngutúr um borgina til að reyna að átta mig betur á henni og nýta góða veðrið (reyndar alveg óþarfi að hugsa svona á Spáni þar sem það er næstum alltaf gott veður). Ég skoðaði dómkirkjuna og einhvern af þessum skrilljón flottu görðum sem eru hérna, skoðaði styttuna af Kristófer Kólimbus og komst að því í leiðinni að ég er orðin alveg helvíti góð í því að taka myndir af sjálfri mér með styttum og húsum og þess háttar, einmannaleikinn eitthvað farinn að gera vart við sig...
Neinei, ég á nú reyndar orðið slatta af vinum sem betur fer og við höfum verið dugleg að fara út á lífið og biðja um “una grande cerveza, por favor”, skellti mér t.d. með þeim um daginn á kareokí klúbb og komst að þeirri niðustöðu að það er hin ágætasta skemmtun (svo lengi sem maður hlustar ekki of vel á tónlistina;) prufaði svo eitthvað kókaín reif kvöldið eftir og svei mér þá ef það var ekki bara verra allavega hef ég ekki látið sjá mig þar aftur.
Um helgina kom svo elsku Ellen í heimsókn til mín og þvílík gleði sem réð ríkjum allan tímann! Það var svo gott að tala íslensku, geta talað án þess að hugsa um það hvernig maður beygir sagnirnar og geta meira að segja sagt brandara sem ná í gegn...þvílík tilfinning! Á föstudaginn gekk ég með hana um borgina, sýndi henni helstu götur og byggingar og svo fórum við á einhvern miðaldamarkað og skoðuðum spænskt handverk, eldbakað brauð og illa lyktandi osta. Um kvöldið var ég svo búin að panta borð á Flamenco sýningu og kvöldmat. Við mættum galvaskar klukkan 8 og biðum spenntar eftir sýningunni. Eitthvað var nú samt fátt um gesti og við vorum orðnar ansi hræddar um að við yrðum einar með dansaranum í þessum litla litla sal. En þegar við vorum byrjaðar á matnum kom þjónninn og sagði að það væru ekki nógu margir gestir svo það væri enginn sýning (sniðugur samt að láta okkur panta áður en hann sagði okkur þetta til að missa nú ekki viðskiptin;), en svo bauð hann okkur nú reyndar ókeypis eftirrétt og að koma á sýninguna kl hálf 10. Við ákváðum þá bara að fá okkur 2-14 glös af tinto verano og sáum seinni sýninguna. Þetta var alveg rosalega flott og bæði gítarleikarinn og senjoritan voru alveg ótrúleg. Við Ellen fórum svo á aðal barinn í bænum (Hannigan and sons) og fengum okkur meira tinto verano;)
Á laugardeginum fórum við svo á ströndina með Mette vinkonu minni frá DK. Við tókum rútuna til Salobrena sem er á Costa Tropical (hljómar ekki illa). Við lágum og steiktumst í hitanum og sólinni allan daginn þangað til ég var orðin eins og tómatur á bringunni og svei mér þá ef Ellen náði sér ekki í annars stigs bruna á lærin...hehe við erum svoooo miklir íslendingar!
Um kvöldið fórum við svo út að borða átum á okkur gat og fylltum svo upp í gatið með ís..mmmmmmm
Daginn eftir vöknuðum við kl 6 til að fara að skoða Alhambra kastalann, við gátum ekki tekið frá miða svo við þurftum að mæta snemma í miðasöluna til að reyna að fá ósótta miða. Þegar við komum þangað var endalaust löng röð og við snérum næstum því við til að fara aftur að sofa. En það var einhver þrjóska sem hélt okkur þarna í röðinni í skítakulda í 1 tíma og 40 mín! Meðan við biðum fór ég og keypti handa okkur kaffi og sætabrauð til að við mydum ekki deyja, við settum svo alveg endalaust mikið súkkulaði út í kaffið svo við gætum drukkið þennan horbjóð og þvílíkur undradrykkur. Við fengum báðar munnræpu af svefnleysi og koffínsjokki og síðustu 40 mín í röðinni liðu á 30 sek. Við fengum miða á endanum og þessi bið var sko alveg þess virði. Þetta er alveg ótrúlega flott og stórt allt saman og það tók okkur um 3 eða 4 klst að skoða allt! Eftir þessa skoðunarferð var hungrið farið að segja til sín og við hlupum eins hratt og við gátum á Pizza Hut (mjög menningarlegt í stíl við skoðunarferðina). Eftir það fórum við svo og keyptum annan ís og svo skilaði ég Ellen á rútustöðina. Takk fyrir frábæra helgi Ellen!

Nú sit ég svo hér á sveitta internetkaffinu mínu að reyna að skrifa þetta blogg eins hratt og ég get því hér er hiti gott fólk...! Nennir einhver að senda mér bara pínu kulda í poka svo ég geti sofið á nóttunni...?

Læt hér fylgja með myndir frá helginni;)
Mynd1.Sjálfsmynd með Kristófer Kólimbus
Mynd2. Önnur sjálfsmynd af afar hvítum íslending
Mynd3.Ellen að fara að borða á sig gat;)
Mynd4.Í koffínsjokki í röðinni
Mynd5.Alhambra-kastalinn

En þangað til næst...adiós amigos!

8 comments:

Anonymous said...

Takk somuleidis, tetta var frábaer helgi;)

Anonymous said...

Gaman að heyra frá þér. Haltu áfram að skemmta þér

Anonymous said...

Hola guapa!
Acabo de llegar de Madrid y me acordé mucho de ti pero no tenía tiempo para llamarte con el lío que tenía con el trabajo. Me alegro un montón que estés disfrutando la vida Granadina y me encantaría poder venir a visitarte pero ya veremos si puedo convencer a tu hermano... ;)
Que te lo pases bien bonita... te mando un abrazo muy fuerte!

Anonymous said...

Vá hvað ég var ánægð þegar ég kom hér inn og sá langt og gott blogg :)

Anonymous said...

ég vissi ekki einu sinni af því að þú værir með blogg! jesús gonzales og jose maria! þvílíkur skandall!

annars sendi ég alla mína kossa og knúsa til þín!! mikið væri gaman að kíkja í heimsókn til þín!! kv. arnamekkin

Heiðdís Halla said...

Mega sakn!!! Það er greinilegt að það er gaman hjá þér!!! Heyrumst fljótlega!
KIss
kiss
kisss
kissssssss
Big sys

Anonymous said...

Oh hvað það er gaman hjá þér! Og hefur verið gaman hjá ykkur Ellen, sæturnar mínar.

Knús og hlakka til að sjá þig!

Anonymous said...

haha kannast við það að þurfa alltaf að taka mynd af sjálfum mér við túristahluti...enda mössuðum við alltaf djammpósmyndirnar sem ég á svo mikið af;)
Nældu þér svo í flamingo dansara!

Sakna þín sykurpúði

knús