Saturday, November 10, 2007

sitt lítið af hverju...

Vá hvað það er langt síðan ég bloggaði ég verð að bæta fyrir það. Í vikunni á undan þessari var ég í fríi eftir lokaprófið (sem ég bæ ðe vei flaug í gegnum með eina villu;) Gerði voðalega lítið annað en að slappa af í fríinu, djammaði pínu og svo fór ég á söngleikinn Fame eða FAMA á spænsku, það var svaka gaman. Náði ekki alveg öllum bröndurunum samt, en maður hlær bara þegar hinir hlægja.
Í gær kláraðist svo fyrsta vikan af kúrs nr 2, hún leið alveg ógeðslega hratt, það er komin held ég of mikil rútína í þetta allt saman hjá okkur vinunum. Skóli að sjálfsögðu alla morgna, pub quiz á mánudögum, internetkaffi á þriðjudögum, bíó á miðvikudögum, karíókí á fimmtudögum og djamm á fös og lau og svo skinkast maður bara í náttfötunum á sunnudögum;) Uppbyggjandi líf!
Mamma sendi mér pakka, það var nammi í honum það var gaman, lakkrísreimar og drakúlamolar. Takk mamma;)
Við fundum líka nýjan skemmtistað, Mae West, sem er brjálað stór dansstaður, með þremur sölum sem allir hafa mismunandi tegundir af tónlist. Svo er hægt að leigja sér einkabás ef maður er ríkur plebbi og telur sig of góðan fyrir hinn almenna pupul. Tók svo eftir því að það eru svalir yfir öllum sölunum, hræddi mig reyndar pínu að sjá það því stólarnir á þessum skemmtistað eru ennþá stærri og þyngri en stólarnir í Sjallanum...
Það var svo kveikt á kyndingunni í húsinu mínu fyrir nokkrum dögum þvílík hamingja sem ríkti á bænum, ég er ekki lengur í hættu við að fá kal á tána ef ég sting henni undan sænginni. Það er samt bara kveikt á kyndingunni frá 16:00 á daginn til 22:00, magnað hvað maður tekur kyndingu sem sjálfsögðum hlut þegar maður býr í heitavatnsparadís.
Úff ég verð að fara að gera eitthvað sem er frásögufærandi, þetta er allt of lítið af fréttum fyrir næstum tvær vikur...lofa að gera betur næst;)

5 comments:

Anonymous said...

komment
þú lifir muuuun áhugaverðara og uppbyggjandi lífi en ég skinkan mín!

Anonymous said...

Það sem ég las: "...blablabla...sem er brjálað stór dansstaður, með þremur SÚLUM (ekki sölum haha) sem allir hafa mismunandi tegundir af tónlist. Svo er hægt að leigja sér einkabás ef maður er ríkur plebbi..." Stoppaði smá eftir þessa setningu og hugsaði hvað í ansk þú værir að ráfa á súlustaði og hvað þetta var ekki alveg að passa! hahhaha hló svo mikið þegar ég fattaði að ég las vitlaust:) Ljóshærða ég! En ég er fegin að þið stundið ekki spænska súlustaði og leigið plebbabása;) luv ya

Anonymous said...

Þetta hljómar nú eins og hið besta vikuprógramm!

Anonymous said...

Myndi skipta á þessari lýsingu og elliheimilinu hvenær sem þú bæðir mig... Knús :*

RaggaÝr said...

hahaha.. ég elska þig ranna:)

og þig líka sólveig mín:) ég væri nú alveg til í að hafa þetta prógram. ég er ekki með neitt prógram eftir vinnu á leikskólanum. þyrfti kannski að fara búa mér til þannig. það væri kannski ágætis breyting:D