




Þá er það næsti skammtur af fréttum (misáhugaverðum samt). Ég fór í skoðunarferð upp i Alpujarra þorpin á sunnudaginn með henni Mette og fleiri nemendum úr skólanum. Það var mjög áhugaverð heimsókn, gengum í gegnum þorpin (reyndar bara 2 af svona 50), skoðuðum alskonar handverk, borðuðum traditional máltíð á litlu krúttlegu veitingahúsi og svo var ég næstum drepin af kinda/geita hjörð! Ca. 400 geitur og kindur nálguðust óðfluga(alveg brjálaðar með bjöllur og allt) þegar ég og Mette ákvaðum að ganga tvær einar upp á einhverja hæð til að fá betra útsýni. Að sjálfsögðu panikkaði ég því þetta voru jú dýr, hræddi líftóruna úr Mette og svo hlupum við eins og fætur toguðu en auðvitað föttuðum við ekki að þær voru bara að hlaupa að grasinu sem við stóðum á en ekki okkur! hehe eftir smástund fengum við hugrekkið aftur og tókum fullt af myndum af hjörðinni. Þegar ég kom heim fór ég svo að læra því að lokaprófið í fyrsta áfanganum var á þriðjudaginn. Það gekk bara vel, náði alveg pottþétt og nú er ég í vikufríi þangað til næsti kúrs byrjar. Vúbbí!
Að sjálfsögðu þurftum við að halda uppá lok fyrsta áfangans og stór hluti úr bekknum fór á Tapas-bar-rölt, það er geggjað! Tapas er svo sniðugt, ef þú pantar þér drykk á Tapas bar færðu Tapas með, en það eru svona litlir snarl-réttir, alveg ógó gott og sniðugt. Matargatið ég var allavega að fýla það í ræmur;) Skemmdi líka ekki fyrir að ein stelpan í bekknum er gift einhverjum milla, og hún tók hann bara með og lét hann borga fyrir allt...heppilegt;)
Í gær var svo Halloween og ég fór að sjálfsögðu út að skemmta mér með krökkunum, því hvað annað getur maður gert í fríi á Spáni??? Fórum á skemmtistaðinn El Camborio, aðal pleisið í bænum) og skemmtum okkur konunglega meðal, munka, býflugna, uppvakninga, engla og þunglyndra gothara;) Og einn gaurinn var klæddur eins og mennirnir í Clockwork Orange!
Á leiðinni heim varð ég svo vitni að alveg ótrúlegum hlut. Við vorum að labba heim, fjórar stelpur saman, gengum þétt saman því maður þarf að fara í gegnum svolítið skuggalegt hverfi til að komast aftur í miðbæinn. Við vorum búnar að mæta alveg skrilljón manns á leiðinni og annar hver karlmaður búinn að blístra eða hrópa einhvern óbjóð (maður er hættur að kippa sér upp við þennan dónaskap), síðan mætum við tveimur ungum strákum sem byrja eitthvað að hrópa, ég og Nicole lítum bara undanog höldum áfram að labba, en þá smeygir strákurinn sér á milli okkar tekur í veskið hjá Fionu sem var beint fyrir aftan okkur slítur það af ólinni og hleypur í burtu með það. Og hann bara tók það! Ég var svo hlessa því þetta gerðist allt á svona 5 sek og allt í einu var hann bara horfinn. Síminn, veskið með kredit og debetkortunum, myndavél og húslyklar! Alveg ótrúlegt. Þetta myndi sko aldrei gerast á Egilsstöðum;)
Í dag er svo allt lokað (nema elskulega internet-kaffið mitt) því það er dagur allra dýrlinga og á morgun er svo dagur hinna dauðu og þá er allt líka lokað. Svo kemur helgi og þá er allt líka lokað. Fjóra daga í röð...spánverjar eru skrítnir. Það er alltaf allt lokað, það þarf bara að vera eitthvað smá í gangi og þá er bara lokað, hviss bamm búmm!
Þetta er samt fínt, afar afslappað líf.
En jæja, ætla að fara að koma mér heim er búin að vera hér of lengi.
Sakna ykkar allra og sérstaklega sakna ég upphitaðra húsa, það er ekkert grín að sofa í óupphituðu húsi þegar næturihitinn er um 8°C! Hvar er dúnsængin mín!?
Eeeennn, allavega þá er ekki fleira í þættinum að þessu sinni, veriði sæl!
p.s. Myndirnar eru af
1.Ég á leiðinni að fagna lokaprófinu
2.Hluti af bekknum á fyrsta Tapasbarnum
3.Eftir nokkra Tapasbari
4.Alpujarra-þorpin
5.Krúttlegir gamlir karlar í Alpujarra ferðinni.
5 comments:
Samt gott að kindurnar átu þig ekki því útlenskar kindur geta verið hættulegar eins og kindurnar í myndinnni Black sheep. Þær voru crazy!!! Stökkbreyttar útlenskar kindur...piff
Þú ert svo sæt að ég trúi því ekki. Það er reyndar lygi, ég trúi því alveg. Stórt knús - þú stendur þig vel stelpa! Ánægð með kindasöguna ;)
Þetta er svo mikið ævintýri..
Svo gaman!
híhí.. góð kindasaga!
hlakka til jólanna.. spáðu í því:D
oh ég sé þig í anda hlaupa á undan kindunum!
þú ert algjör snillingur, það er svo ýkt gaman hjá þér! ég væri til í svona ævintýri!!
knús og kossar á þig elskan mín
Post a Comment