Monday, November 26, 2007

Jæja er ekki kominn tími á blogg?



Sæl öll...
Nú er bara rétt tæpur mánuður þangað til ég kem heim og ég trúi því varla að ég sé búin að vera hér svona lengi, er búið að líða alveg óendanlega hratt. Loksins er farið að hengja upp jólaskraut fyrir mig hérna í borginni og svo verður kveikt á þeim um næstu helgi! Já ég er búin að kynna mér það;) Síðan en Sólveig ofurskipulagða jólabarn búin að kaupa allar jólagjafirnar og senda heim í tæka tíð fyrir jól, eða það ætla ég allavega rétt að vona, frekar leiðinlegt að enda uppi jólagjafalaus á þorláksmessu. Svo um næstu helgi, 1.des þá get ég farið að hlusta á jólalög, Ellý og Vilhjálmur og mitt eilífðaruppáhald Celine Dion!
Það er voða lítið nýtt búið að gerast upp á síðkastið bara alltaf sama rútínan skóli, djamm, skóli. Á fimmtudaginn er svo lokaprófið í öðrum áfanga og ef ég næ því þá fer ég áfram í þriðja og síðasta áfangan, Avanzado B. Þá verð ég líklega farin að babla nokkuð vel á spænsku þegar ég kem heim.
Mette er svo að fara heim til DK á þriðjudaginn næsta svo það verður tekið ROSAdjamm um næstu helgi, erum byrjaðar að kaupa áfengi í hollum svo við þurfum ekki að bera það allt í einu frá búðinni. En ástæðan fyrir þessum svaðalegu áfengiskaupum (best að útskýra ef mamma er að lesa þetta) er neflilega sú að við ætlum að bjóða öllum bekknum okkar í partý heim til hennar, og við ætlum að búa til Tinto Verano handa öllum (Rauðvín+Límonaði) og áðan keyptum við fjórar rauðvínsflöskur sem kostuðu 75 evrusent hver...viljiði pæla! Það er ekki mjög dýrt að bjóða upp á áfengi í partýunum hérna.
Svo fer bráðum að opna skíðasvæðið í Sierra Nevada fjöllunum hér fyrir ofan bæinn og þá ætla ég nú að skella mér á skíði og æfa mig fyrir fjölskyldu-skíða-ferðina til Noregs í febrúar;) Guð hvað ég hlakka til. En talandi um Noreg, þá bý ég með norskri stelpu og um daginn vorum við eitthvað að tala saman um Noreg og Ísland og bera saman og eitthvað svona bull. Haldið þá ekki að manneskjan hafi spurt mig HVAR Ísland sé! Hún er frá NOREGI...ég hef aldrei verið jafn hneyksluð á ævi minni og það hnussaði í mér í svona fimm mínútur áður en ég gat svarað henni...jahérnahér segi ég nú bara.
Svo ákvað ég að gerast ótrúlega djörf og flippuð í dag. Ég hringdi í Mette og bað hana að koma með mér í mollið til að halda í höndina á mér því ég fékk mér göt í eyrun! Já þið lásuð rétt, ég er komin með göt í eyrun loksins, eftir tuttugu ára heigulshátt;) JIBBÍ!
Svo hef ég að sjálfsögðu fleiri skemmtilegar sögur af skemmtilega skrýtnu senjorunni minni sem keðjureykir allan daginn með köttinn í fanginu. En í gær fékk ég hvítlaukssteikt lambakjöt, með fröllum og EPLAsósu...híhí ég veit ekki hvar hún fær þessar mögnuðu uppskriftir. En að sjálfsögðu kláraði ég af disknum mínum eins og mamma kenndi mér með svo ansi árangursríku “borðaðu matinn þinn, eða þú ferð inn í búr”-aðferðinni;) Takk mamma, ég væri örugglega soltin úr hungri ef ég væri ekki svona vel upp alin...

En með þessum orðum ætla ég að ljúka erindi mínu og bið ykkur vel að lifa ....

Sjáumst eftir aðeins 26 daga!

8 comments:

Anonymous said...

Tíhíhí.
Skemmtileg aðferðin sem mamma notaði á þig í gamladaga til að fá þig til að borða. Ég hef aldrei þurft svona "hvatningu"´með mat! :-)
Mér hlakkaR alveg hrEkalega til á fá'ðér heim.
*Ég hvíli tösku mína......
Bjöggi Bró
*Heyrði þennan í dag, íslenska útgáfan af " I rest my case" :-)

Anonymous said...

HA? þú með göt í eyrunum (þá er ekki hægt að gera eyrnasnepladingl við þig! Demm.. hahaha!(bara frá Röggu))

alltaf getur maður þakkað foreldrum sínum fyrir eftir á. (þeir eru yndislegir(bara frá Elsu))

knúsíbúsí..söknum þín!

sólbrenndu vinkonur þínar

Elsa og Ragga

Anonymous said...

EYRNALOKKAR!!!! ÞAÐ VAR ÞÁ!!! Á DAUÐA MÍNUM ÁTTI ÉG VON;) SOLLA SYSTIR Á SPÁNI AÐ FLIPPA;) dJÖSS HVAÐ ÉG HLAKKA TIL AÐ FÁ ÞIG HEIM UM JÓLIN!

BESOS MUCHOS NARNIA CALIMUCHO HABLA

HEIÐDÍS

Arna Mekkín said...

hehe til hamingju með götin.. :)
ég veit ekki meir.. mig langar í partý! :) við höldum partý þegar þú kemur heim!

Anonymous said...

haha eyrnasnepladingl er ógeðslegt orð! Sakna þín stelpa og til hamingju með götin (en mundu samt manið mitt)

Anonymous said...

sumir fara til Spánar og fá sér göt í geirvörturnar... aðrir eru Sólveig:)

Setur senjoritan kannski líka þrjá gulrótabita á diskinn þinn eins og MotherPop!?!

Annars bara BRÓÐIR SÓLVEIGAR!
(K)(L)(K)

Kv.Gitta (sem skrifar komment BARA frá sér)

Anonymous said...

Er rútínan ekki meira djamm skóli djamm djam djamm skóli djamm djamm djamm ?
Villtu ekki viðurkenna það er verið að fegra hlutina fyrir Ólöfu ?
Rauðvín og límónaði ?
Göt í eyrun ?

Hvað er að gerast, veit ekki hvað þú hefur oft talað um að þú fáir þér sko ALDREI göt í eyrun og þú ákveður að gera það úti á Spáni... FLIPPPPi ;)

Anonymous said...

Þegar ég var 20 ára þá:

* bjó ég LÍKA í Granada

* fékk ég mér LÍKA fyrst göt í eyrun

* drakk ég LÍKA marga lítra af tinto de verano

* var rútínan mín LÍKA DJAMM - skóli DJAMM

* þurfti ég LÍKA að segja fólki oft hvar Ísland væri á landakortinu

* ákvað ég LÍKA að bíða í 12 klst á Stansted flugvelli yfir nótt því það var engin mágkona sem sagði mér hvað það væri mikið kjaftæði (ég og visa kortið hennar mömmu þinnar vorum að panta hótel fyrir þig - sjá mailinn þinn)

* var ég LÍKA á lausu og því bróðir þinn var bara 16 ára hahaha ;) Tékkaðu á menntaskólabusunum þegar þú kemur heim... þá veistu hvert framhaldið verður hahaha

Hlakka til að fá þig heim bomboncito... ég bið að heilsa fjöllunum mínum... þú verður að vera dugleg að æfa þig fyrir Trysil!

Un abrazo muy fuerte
Heiður