Sunday, November 18, 2007

...ég veit ekki hvað ég á að skíra þetta blogg....






Jæja, ég lofaði að gera betur í þetta skiptið...
Síðasta sunnudag fór ég með Fionu í Vísindagarðinn hér í Granada að skoða allskonar áhugaverða hluti úr sögu vísindanna. Þar var líka salur með svona sjónrænum blekkingum og sýning með eitruðustu dýrum heimsins, það var rosalega flott. Þar sá ég tarantúlur, svörtu ekkjuna, sporðdreka, skröltorma, slöngur, froska og allskonar dýr í öllum litum. Síðan fórum við á fuglasýningu þar sem við sáum fálka, erni og einhverja aðra stóra fugla leika listir sínar, er ekki alveg viss um það hvernig fuglar þetta voru því þeir hétu eitthvað á spænsku, en þeir voru allavega mjög stórir. Hefði verið hentugt að hafa pabba fuglasérfræðing með sér, eða frekar, hvenær er ekki hentugt að hafa pabba með sér ég bara spyr. Það hefur tekið mikinn sjálfsaga og æfingu að hringja ekki í pabba til að spyrja hann ráða 5 sinnum á dag eins og ég var vön að gera fyrir rétt tæpu ári...allavega smá útúrdúr en til að taka hann saman þá : ég sakna pabba;)
Eftir fuglasýninguna fórum við svo í svona fiðrildahús þar sem voru alveg ógeðslega mörg risastór fiðrildi flögrandi um rétt fyrir framan nefið á þér, og ég missti mig alveg með myndavélina.
Skólinn gengur bara sinn vanagang og tíminn líður alveg ógeðslega hratt hérna, það eru bara 34 dagar þangað til ég kem heim...aaaaaaa!
Síðan tók ég eftir því um daginn að fólk á Spáni er alveg svaðalega gróft þegar það kemur að því að leggja í þröng stæði. Það hikar ekki við að keyra aðeins lauslega aftan í annan bílinn til a færa hann og bakka svo á hinn til að komast inn á stæðið. Allir bílarnir hérna hafa dældir og rispur og brotna speygla og það er öllum bara alveg sama, magnað alveg. Maður yrði þokkalega drepinn af maður myndi reyna þetta á Laugarveginum.
Síðan í næstu viku ætlum við Mette að fylkja liði (tvær saman) og skunda á einhvern vel valinn pub og horfa saman á Ísland-Danmörk, með víkingahjálma og andlitsmálningu í fánalitunum. Og ef einhver veit um aðra rás en Sýn sem sýnir leikinn þá má hann endilega láta mig vita því ég hef það á tilfinningunni að þetta þyki ekki mjög mikilvægur leikur hér á Spáni og það verði erfitt að finna einhvern sem sýnir hann, en hver veit? Í versta falli þá fáum við okkur bara bjór með Víkingahjálma, það hljómar bara sem ágætasta skemmtun;)
Síðan þarf ég að fara að pæla í jólagjöfum því ég þarf að senda þær heim fyrir ca. 5.des svo þær verði nú örugglega komnar.
Og talandi um jólin, er ekki allt orðið fullt af jólaskrauti, auglýsingum og svoleiðis á Íslandi? Hér er ekkert! Og fyrir jólabarn eins og mig þá finnst mér það bara ekkert skemmtilegt. En ég sá nú samt til þess áður en ég fór að ég væri nú með nóg af jólatónlist í tölvunni minni og strax 1.des fá Ellý og Vilhjálmur að hljóma meðan ég skrifa jólakort;)
Ef ykkur langar að vita meira um spænsku jólin þá byrja jólin 22.des á Spáni með Jólalottóinu, þá kaupir fjölskyldan saman lottómiða og horfir á sjónvarpið og borðar Spænskar jólasmákökur. Síðan slappar fólk bara af öll jólin (Spánverjar eru heimsmeistarar í að slappa af) og fólk skiptist á að fara í matarboð. Síðan á gamlárskvöldi er veisla bara eins og heima nema í staðinn fyrir að skjóta upp flugeldum þá borða þau tólf vínber á slaginu tólf, og þetta er ekkert grín, þetta gera þau fyrir gæfu á nýju ári. Mér fannst þetta alveg magnað! Síðan opna þau pakkana 5.janúar því það er víst dagurinn sem vitringarnir þrír gáfu Jesú gjafirnar sínar, nema á Spáni heita þeir Töfra kóngarnir...skemmtilegur fánýtur fróðleikur fyrir ykkur um Spænsku jólin;)

En nú bankaði Señoran mín á hurðina eins og hún gerir tvisvar á dag og segir “vamos a comer”, eða við erum að fara að borða. Mmmm hvað ætli ég fá djúpsteikt með majonesi núna???
Allavega, ég vona að ég hafi staðið mig betur í þetta skiptið, verið dugleg að kommenta, mér finnst svo gaman að sjá að einhver les þetta bull;)

Hasta luego!

Myndir:
1.Fiona í Vísindagarðinum
2.Tarantúla
3.Ég og Mette á góðri stund
4.Ein af milljón fiðrildamyndunum sem ég tók.

12 comments:

RaggaÝr said...

veistu stundum þegar ég hlusta á vissa tónlist sem minnir mig á hrafnagilsstrætið eða geri eitthvað sem minnir mig á það þá fer ég alltaf að sakna þess að búa þar. ætlaði bara að segja þér það. fékk svoleiðis tilfinningu í gær.
mundi það bara þegar þú varst að tala um að hringja í pabba þinn:D

þetta er leiðilegt komment, en ég veit ekkert hvað annað ég á að segja til að kommenta:D

sakna þín og hlakka til að sjá þig um jólin:) (hey já, ég er í jólaskapi) samt er ekki komið mikið jólaskraut upp!

Anonymous said...

HÆbbs! You made my day! Mánudgsmorgunn í vinnunni og ég var bara með annað augað opið. Það er dimmt og frekar kallt úti, erfitt að fara á fætur. Þér tókst að fá mig til að opna hitt augað og brosa! Ég var viss um þegar ég vaknaði að ég mundi ekki gera það fyrr en á morgun;) Takk
luego pablo arbre chesno senjorita! Sakna þín! hlakka til að fá þig hiem! KISSSS Heiðdís

Anonymous said...

Æi pabbastelpan! Svo gaman að lesa bloggið þitt, ég er núna með svuntu framaná mér með jólabaksturinn í ofninum. Löngu byrjuð að gera jólakort og farin að hlusta á Ellý og Vilhjálm. Nú krossa ég fingur og vona að ég þurfi ekki að vinna um jólin...

Kossar.

Anonymous said...

Ég fékk smá ónotatilfinningu þegar ég las um fuglasýninguna. Ekki sniðugt Sólveig! Ekki sniðugt!
Tólf vínber á miðnætti er samt snilld, sá sem fann upp á því er með húmor, örugglega sá sami og fann upp á því að kalla vitringana þrjá töfra kónga. Hefur pottþétt stunið upp á því líka að kalla Jesú töfra gúrú en það hefur ekki þótt nógu kúl.

Sakna þín sykurrass

Anonymous said...

Iss piss ég hefði nú líka getað frætt þig um fuglana... þakkaðu fyrir að vera laus við þetta jólabrjálaði..
kv. Trölli

Anonymous said...

hæ Hluss gaman að lesa þetta. haltu áfram að hafa gaman. hlakka til að fá þig heim.

Anonymous said...

Stunið uppá því Ranna?
Hér er sólskín og heiðskýrt.
Ég held að ég fíli spænsk jól.
Ég hata líka IKEA og jólin þar.

Ég skila sko ekki öllum pökkunum eins og Trölli þegar ég stel jólunum.

Fegin að þú ert búin að finna einhvern to replace Ranna í "svona" myndum.

Anonymous said...

HÆ sætust! :)
hér er ekkert svakalega mikið af skrauti, eitthvað í kringlunni jú en ég fer þangað svona 1x í mánuði! (þyrfti að hafa þig hér til að fixa það)
en mikið hló ég þegar þú minntist á pabba þinn, pabbi þinn ætti auðvitað vera til sem sjálfshjálparbók í Pennanum hann er svo bestur! :)

knús í drasl, vona svo sannarlega að ég fái að sjá þig eftir þessa 34 daga! XXX arnamekkin

Anonymous said...

tæknitröllið ég var að fatta bloggið þitt núna;/

á eftir að sakna þín á árshátiðinni:)

Anonymous said...

tæknitröllið ég var að fatta bloggið þitt núna, svo ég las það bara í einum grænum, algjör snilld;)

á eftir að sakna þín á árshátiðinni

Unknown said...
This comment has been removed by the author.
Anonymous said...

mægod, ég er búin að lesa allt sem þú hefur póstað frá spáni á mettíma. edda tók smá törn um daginn og hætti ekki að tala um hvað þú værir dásamleg í heilan dag, minnir að það hafi verið því systir þín er nýjasti meðlimurinn í bankagenginu hennar. farðu vel með þig og njóttu lífsins. vá svo gaman að þvælast ein í útlöndum.. hvað er ég að gera á íslandi. bestu kveðjur, kristín k