Jæja, nú er búið að kaupa flugið til og frá Spáni (útskriftargjöfin frá mömms og pabbs), og þá er það orðið skjalfest að ég flýg út þann 28.september nk kl 07:15. Millilendi svo á Stansted og flýg þaðan til Granada. Get bara ekki beðið! Þangað til ætla ég að eyða öllum mínum tíma í blessuðum Söluskálanum og reyna að kreista út úr honum hverja krónu sem ég get:) Það getur verið ansi erfitt að afgreiða endalaust pirraða Íslendinga, Kínverja og Pólverja sem tala hvorki ensku, íslensku né dönsku og hálfníræðar kellingar sem tuða yfir öllum mögulegum og ómögulegum hlutum, en á meðan hugsa ég bara um Spán og tel niður dagana...og í dag eru það 25 dagar!
Þangað til næst...
Monday, September 3, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
jæja, nú er ég búin að koma og kíkja á síðuna þína og mun setja linkinn þinn inná mína síðu fljótlega
kisskiss
Post a Comment